Æxli eru yfirleitt af hinu illa, þau er reynt að fjarlægja og drepa, ekki flytja á annan stað til að þau geti vaxið og dafnað þar. Þessi líking segir flest allt sem segja þarf um afstöðu flestra þeirra sem vilja Reykjavíkurflugvöll í burtu. Er nema von að “æxlið” berjist á móti. Ég held að það halli frekar á skipulagsfræðingana að finna hentugan stað fyrir nýjan flugvöll en flugáhugamenn. Skipulagsfræðingarnir mættu standa aðeins uppúr sandkössunum og horfa út fyrir...