Nei eiturlyf er í raun bara orð sem er notað yfir ólögleg fíkniefni/vímuefni. Annars hefur LSD skaðleg áhrif á líkamann, þannig að það væri samkvæmt þinni skilgreiningu flokkað sem eiturlyf. Annars finnst mér eiturlyf einkar ómerkilegt orð. En það er rétt hjá þér að sum vímuefni eru ekki fíkniefni og öfugt.
Málið er að bann við áfengi virkar ekki og það eina sem gerist er að fólk fer að drekka heimabruggað og sterkara meira (sem er hættulegra obv.) og glæpamenn fá meiri tekjur og ríkið minni tekjur.
Ég veit að eiturlyf er bara þetta hræðsluáróðursorð, en ég skil það alltaf sem svo að fólk eigi við fíkniefni. Og já, þeir sem að neyta fíkniefna af og til eru fíkniefnaneytendur, þeir eiga kannski ekki við neitt vandamál að stríða, amk ekki alvarlegt, en þeir eru samt fíkniefnaneytendur.
Stelpan sendi inn myndina til að fá álit á myndina. Hún getur ekki sent inn myndina og búist bara við jákvæðum álitum. Tjáningarfrelsi er ekki það að mega tjá sig en mega ekki egja neitt neikvætt, það er að mega segja hvað sem maður vill, stundum skilgreint sem svo að það sé að mega segja það sem maður vill, svo lengi sem það fer ekki út í hatur. Hann er ekki að skíta yfir það sem hann þekkir ekki, hann er að kommenta neikvætt á það sem hann sá út frá myndinni. Það að lita hárið á sér í...
Nei það er einmitt málið. Þetta er EKKI eins og jólatré. Það eru ekki nokkrar sveitir sem eru bara BESTAR, það eru ofmetnu sveitirnar. Þær sveitir sem komu á réttum tíma voru heppnar, ekki miklu betri en svipaðar sveitir sem komu á öðrum tíma eða stöðum og náðu ekki jafngóðum samningum, eða álíka. Það að selja plötur er líka ekki mark um það að vera góð hljómsveit. Tróna Backstreet Boys á toppi tónlistarinnar vegna þess að plata þeirra Millenium seldist í 40 milljón eintökum?
Að sjálfsögðu geta hljómsveitir verið ofmetnar. Tónlistarhæfileikar, t.d. 50cent eru ofmetnir, tónlistarhæfileikar Britney spears eru ofmetnir, tónlistarhæfileikar alls konar hljómsveita sem voru búnar til af fyrirtækjum eru ofmetnir. Engin hljómsveit er það legendary að geta verið dáð jafn mikið og t.d. Metallica, hljómsveitin er ekki slæm þrátt fyrir það, heldur ofmetin.
Nirvana, Iron Maiden, Bítlarnir, Rolling Stones, Metallica, Led Zeppelin, allar “legendary” hljómsveitir eru í raun ofmetnar. Fýla samt mikið af þessum sveitum, Led Zeppelin t.d. með mínum uppáhaldsböndum, en samt ofmetið.
Renni hendinni stundum í gegnum hárið þegar ég er að hugsa. Naga neglurnar. Nota hendina rosa mikið þegar ég er að útskýra hluti eða rífast. Verð alltaf að segja “Mini” upphátt þegar að ég sé Mini Cooper. Tapaði leiknum.
Ég veit að pylsa er skrifað pylsa. Breytir því ekki að þessi rök voru fáránleg. Ég gæti sagt “2+2 eru 4 vegna þess að blár og rauður eru ekki sami liturinn”. Þó að ég hafi rétt fyrir mér þá þarf það ekki að þýða að rökin séu góð. Svo er ekki rangt að SEGJA pulsa, vegna þess að framburðurinn á Y (þeas, framburðurinn þegar að það var actually munur á Y og I) var líkari U en I. Auk þess er það held ég komið í orðabók, sem gerir það rétt að skrifa pulsa. Þá er ég búinn að tjá mig um þetta...
Skil ekki rökin með að taka önnur orð sem eru með Y. Hvað með orð sem eru með U? Ekki mYnnur heldur mUnnur Ekki brYnd heldur brUnd Ekki tYssa heldur tUssa Ekki gYlt heldur gUlt
Það er ekki hægt að rífast við fólk á huga sem er búið að mynda sér skoðun og á ekki eftir að breyta henni. Þetta á bara eftir að enda á því eftir 20 bls af svörum að við erum á sama stað og núna.
Davíð Oddson var ekki einn í því að einkavæða bankana. Við værum líka í vandræðum þó að bankarnir væru ekki svona stórir, minni vandræðum, en samt vandræðum. Það er svo margt sem fór úrskeiðis, og það er ekki bara reglur um einkavæðingu bankana. Það er ekki hægt að benda bara á eitthvað eitt sem klikkaði, það eru fullt af hlutum. Geir H. Haarde er til dæmis maður sem hefði getað stöðvað þetta í fæðingu og komið í veg fyrir að skaðinn yrði svona mikill eftir að hlutirnir byrjuðu að fara...
Haha, þú ert svo heimskur. Davíð Oddson er einn af fjölmörgum sem eiga þátt í þessu máli. Ég er viss um að þú veist ekki einu sinni hvað það var sem hann gerði vitlaust.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..