Afhverju þarf fólk alltaf að finna einhverja tímalínu fyrir það að segja “ég elska þig!” Ég meina. Ég var með strák í fimm mánuði, vorum ekki nálægt “ég elska þig” planinu, áttum við þá einhvern meiri rétt en par sem er búið að vera saman í viku? Sumir eru bara með hórmónaflugið á fullu, tilfinningasamari og eiga auðveldari að segja þetta og verða það. Svo þegar úti það er farið, þá er það að elska allt annað en að vera ástfanginn. Vinkona mín og kærastinn hennar sögðu í fyrstu vikurnar í...