Fullyrðingin að “Flest stríð í heiminum byrja vegna trúarbragða” er hreinlega röng. Það gefur ekki rétta mynd þegar talað er um stríðsátök að draga línurnar á milli stríðandi aðila með því að tala um þá trú sem þeir aðhyllast. Gott dæmi um þetta eru átökin á Norður-Írlandi sem hafa fátt með trúarbrögð að gera. Átökin þar eru sjálfstæðisbarátta, ekki átök milli trúarbragða - það vill svo til að Englendigar eru mótmælendur og Írar eru kaþólskir. Vafalaust erum við í hinum vestræna heimi...