Þú ert greinilega búin að spekúlera í þessum málum. Og jú,jú. Það er möguleiki fyrir þessu öllu saman. En eins og sagt hefur verið, þá er mest allt satt þangað til afsannað er.
Ég er alveg sammála þér. Það mættu vera einhver skemmtiatriði eða eitthvað. Til dæmis eins og í körfuboltanum í Bandaríkjunum. Þið vitið. Þegar þeir kasta boltanum frá miðju í körfuna og vinna eitthvað. Það sama væri hægt hér í handboltanum. Bara kasta frá lengri stað og hafa eitthvað fyrir svo það verði ekki eins auðvelt.
Ég vil ekki móðga þig en mér finnst þessi skoðun þín vera hin mesta vitleysa sem til er. Auðvitað eru til geimverur. Alheimurinn er það stór að það er ekki hægt að afsanna það að geimverur séu til.
En geturðu verið í tölvunni án þess að hún frjósi ef þú þú kemur ekki við þetta concon eða skrifar það? Svo er líka möguleiki þú hafir fengið jafnvel vírus eða eitthvað.
eins og að finna þetta helv…. fiðrildi whose (flapping held að sé blakandi, er ekki viss) orsakar alla þessa stormi sem við höfum verið að fá undanfarið verða að stoppa. er þetta nóg?
En hvað með fólk sem er tilbúið að kjósa en fær það ekki af því að einhverjir sem töldu það að fólk sem orðið er 18 væri ekki fær um að kjósa. Það er bull. Jafnvel yngra fólk er tilbúið til að kjósa.
Maður veit aldrei hvað maður sér. Ég sjálfur var einu sinni að labba og sé ég þá lítið hvítt ljós sem fer í hringi og svífur um í loftinu eins og vængbrotinn fugl eða eitthvað. Ég horfi lengi á ljósið og finnst eins og það sé fugl en gat verið geimskip. Þú sást hinsvegar ljós sem stækkaði. Það getur alveg örugglega EKKI verið fugl en getur verið sprengistjarna eða eitthvað svoleiðis. Farðu bara inn á vefsíðuna hjá Nasa og tékkaðu hvort þú sjáir ekki eitthvað um sprengistjörnur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..