Senn líður að upphafi Íslandsmótsins í knattspyrnu, Símadeildarinnar. Fyrsti leikur mótsins verður viðureign Fylkismanna og KR, en þetta voru tvö efstu lið mótsins í fyrra. Leikurinn fer fram á Fylkisvelli 15. maí. Mörgum knattspyrnuáhugamanninum finnst það synd að hafa þvílíkan stórleik fyrsta leik sumarsins, en þetta verður án nokkurs efa einn af fáum “úrslitaleikjum” sumarsins. Það er þó víst að búast má við hörkuleik og góðri skemmtun. Leikur liðanna í Árbænum í fyrra endaði með 1:1 jafntefli, eftir að KR-ingar höfðu komist yfir en sofnað á verðinum og fengu á sig mark undir lok leiksins.