Ég er sammála Keno um að það eru ekki allir lærðir hundaþjálfarar góðir. Sumir eru full fljótir að mæla með geldingu eða lífláti. En ég held samt að það sé nú öruggara að fara með hundinn til þjálfara með menntun. Hundar eru svo ólikir, þótt að eitthvað trix með einn hund hafi virkað gæti það haft öfug áhrif á annan hund. Mig langar að vita Aphro með hverju mælir þú með, mjúkri eða harðri þjálfun? Fylgir þú einhverri kenningu og hvaða bækur mælir þú með? Segðu okkur meira frá hvað þú gerir...