Mig langar að segja ykkur frá smá óhappi sem ég lenti í á Toyotu Yaris í gær. Ég er að vinna á svoleiðis bílum, eru í eigu Domino's pizza. Ég var að fara með sendingu frá spönginni upp í mosó, lengst upp í mosó, þannig ég ákvað að fara Hafravatnsleiðina til að vera fljótari. Vegurinn var frekar sleipur en gripið var alveg sæmilegt og enginn annar bíll sjáanlegur þannig ég keyrði frekar hratt. Svo kem ég á 80-85kmh í langa og aflíðandi beygju en beygjan verður alltaf meiri og meiri, þannig að...