Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

flat6
flat6 Notandi frá fornöld 586 stig
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Stóð hann uppá höfða fyrir svoldnu síðan? Ef það er rétt þá hef ég séð hann. Hvernig er hann öðruvísi?

Re: MMC Eclipse

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er reyndar svo ekkert að því að eiga tjónabíl sem vel við gerður, réttur upp á mm.

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er alltof mikið fyrir bílinn, þetta er reyndar öflugur og skemmtilegur bíll, 3,0ltr 211hö.

Re: Verð á nýjum Mazda RX-8 á Íslandi?

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Er ekki sama wankel vélin enn í rx-8? sem endist ekkert og eyðir eins og togari. <a href="http://static.howstuffworks.com/flash/rotary-engine-animation.swf">http://static.howstuffworks.com/flash/rotary-engine-animation.swf</a

Re: stræto

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þeir láta það sko ekkert á sig fá þó að maður sé á 80-100kmh að nálgast stoppistöð þar sem þeir eru að bíða og bruna af stað og beint fyrir mann þannig að maður þarf bara að gjöra svo vel að negla niður!!

Re: stræto

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Er ekki einhver 10þús kall í sekt ef maður hleypir þeim ekki inn á götuna?

Re:

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hvernig imprezu varstu að versla þér:)?

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ætlar þú ekki að fá þér svona bíl?

Re: stræto

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það munaði svo litlu að ég hefði dúndrað inn í hliðina á strætó um daginn. Hann svínaði illa á mig, fór hálfur inn á akreinina mína og stoppaði svo! Beint fyrir framan mig.

Re: MMC Eclipse

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Tjónabílar geta verið illa viðgerðir og verið algjör slysagildra…

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hvernig 924 áttu?

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það getur vel verið að hann hafi verið í hveragerði einhverntíman. En þetta sílsakitt var alltof stórt og klunnalegt fyrir bílinn. Svo var það svo illa farið, það var ómálað að innan þannig það var engin vörn geng bleitu inn í trefjaplastið þannig það var allt útbólgið og var eiginlega bara ónýtt.

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég þyrfti bara að fá að kíkja betur á bílinn hjá þér. Áður en maður fer að spá meira í bílinn.

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hann var settur í bekk. En þegar bitinn beyglaðist tognaði á honum og þegar hann var réttur í bekknum var enn krumpa eða hálfgerð dæld í bitanum. Þegar þetta er hitað gátum við rétt þetta alveg 100% plús það að stálið dregur sig saman þegar að það kólnar aftur og nú eru engin ummerki eftir beyglu í bitanum. Sem er auðvitað gott mál:)

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Já hann er sprækur. Ég er alveg til í aðspá í þetta. Ég ætlaði að reyna fá mér eitthvað kraftmeira, það borgar sig ekki að vera tjunna minn eitthvað, það er bara svo geðveikislega dýrt.

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Jújú ef maður væri ekki svona þrjóskur væri ég löngu hættur með bílinn:) Hvernig gengur annars með 924Carrera? Það verður gaman að sjá hann á götunni. Ég veit um annan svona 924CarreraGT lúkk. Hann er held ég að fara á götuna fljótlega. Sá bíll er með allt hjólastell undan 944Turbo og gírkassann líka, læstur minnir mig. Svo er vél úr 924Turbo sem er með stærri túrbínu en á að vera og einhver tæp 300hö.

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Já hann verður sprautaður aftur rauður. Mér finnst það nú ekki fallegasti liturinn á honum en samt ágætt. Það er svo dýrt að láta sprauta í öðrum lit. Reyndar er liturinn sem fer á hann núna aðeins dekkri en original liturinn, og hann verður sprautaður með lit og glæru yfir sem gefur skemmtilega dýpt í litinn…

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þú setur svo mikið á hann. Ég skoðaði bílinn þinn þegar hann var hjá Pálmari í sprautun, þá var minn bíll úti í horni hjá honum. Læturðu Techart felgurnar með bílnum á þessu verði?

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Boxið verður flott. Bara að ég sprengi ekki afturgluggann úr:)

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Takk takk:) Þetta er fínasta hobby að gera upp bíla, ef maður hefur aðstöðu til þess.

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Égætlaði nú að kaupa slökkvitæki í ÁG einusinni til að hafa það í bílnum. En stráknum sem var að afgreiða fannst svofynndið að ég ætlaði að hafa þetta í götubíl að hann gat varla afgreitt mig… ég keypti tækið ekki þar:) Það er sniðugt að hafa slökkvitæki í bílum,ekkert endilega stórt bara eitthvað lítið og nett sem virkar. Því það kemur fyrir öðru hvoru að kvikni í bílum.

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hér eru nokkrarmyndir af bílnum: www.lanparty.is/geir ég var bar ekki nógu duglegur að taka myndir…

Re: Bíllinn minn- verkefnið.

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nei það er ekki alvuru CarreraGT. Bara venjulegur breyttur 924. Það á reyndar að fara í hann tjúnnuð turbo vél sem á örugglega eftir að virka! GHR á bílinn, ásamt öðrum 924 sem hann er að rífa niður.

Re: Stimplar, stangir...

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fáðu nýja, það er betra.

Re: Víbringur í bremsudiskum

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
það geta myndast sprungur í diskanna vegna of mikils hita held ég. Ég var með bíl í láni í sumar og fann alltaf fyrir einhvernjum titringi. Þegar ég tók dekkið af sá ég að diskurinn var sprunginn á 6 stöðum!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok