Ég er sammála því að það er mikil hystería í gangi hvað varðar ketti og börn. Ég átti 3 ketti þegar ég varð ófrísk en því miður var keyrt á einn þeirra. Ég fékk endalaust að heyra glósur um það að ég þyrfti að losa mig við kettina eins og þeir væru slitnir sokkar en ekki fjölskyldumeðlimir. Eins og þú veist þá eru óléttar konur ákaflega viðkvæmar fyrir öllu og á endanum lét ég bara alla heyra það að þessi umræða væri mjög særandi og ég vildi alls ekki heyra meira um þetta. Þá minnkaði þetta...