Já en af hverju halda þau það? Var Dylan ekki bara rændur þarna þegar vinur hans meiddist og þeir fóru burt á einhverjum bíl? Gerðist eitthvað meira heldur en það?
Ég er sammála ykkur hérna, ÞOLI hann ekki núna.. var alltaf svo sætur og saklaus.. eða ekki beint saklaus kannski en þið vitið hvað ég á við! Núna er hann hóóóóóra!!!
haha legvatnið… einmitt :P en já.. Lost eru snilldar þættir, góðir í alla staði! Ég á einmitt fyrstu 20 þættina og hef heyrt að það verða 25 þættir en ekki 26 og að síðasti þátturinn verður í 2 tíma.. veit samt ekki hvernig það mun verða…! Það kemur önnur sería af Lost hef ég heyrt :) Mér fannst fyrstu þátturinn æði og margt gerast í honum og svo urðu þeir bara betri og betri… mér finnst enginn þáttur hafa verið lélegur eða leiðinlegur. Maður fær alltaf að vita meira og meira í hverjum þætti...
Váh ég nánast grét þegar ég sá að það var grein hérna sem að var um Gilmore Girls! Þessir þættir eru ekkert annað en snilld og það er svo gaman að horfa á þá :) Þið sem að eigið 1 seríu á dvd þá er einmitt sagt í viðtalinu við Amy frá því hvernig Gilmore Girls urðu til og hversu löng handritin eru… mér finnst svo gaman að heyra þau tala og auðvitað er enginn svona í alvörunni.. það er heldur enginn til sem að er eins og Joey og restin af þeim félögum :P en það þýðir ekki að við þolum þau...
Flott grein hjá þér. En veistu í hvaða seríu hún kemur fyrir í Buffy the vampire slayer? því að ég hef horft á allar seríurnar nema síðustu oftar en ég get talið upp og man engan veginn eftir henni! :/ Eru 7 seríur af Buffy og ég hef séð fyrstu 6.. langar svo að vita.. pretty pleace :P
Já ég er sammála þér… það er mikið drama en ekki allt of samt :) Er líka svo mikill Karenar og Lucas aðdáandi að það hálfa væri nóg… Ég var vön að elska Haley, en ÞOLI hana ekki núna!
Jake sagði við Peyton “let's bring Jenny home” held alveg pottþétt að þau séu bara að fara að ná í Jenny og koma svo til baka.. enda fór Peyton ekki með mikið með sér! :P
Oliver, var eins og allir hérna eru búnir að koma áleiðis.. geðbilaður. En það er veiki og hann þarfnaðist aðstoðar lækna! Chris er heilbrigður fáviti sem á ekkert með það að vera að blanda sér inní mál annarra bara af því að honum þóknast! Hata Chris meira!
Ég er ekki sammála þér, Susan verður ekki eins og tálkvendi (vitanlega að tala um Izzy) því að Tom er ekki giftur! Margir sem að fórna stöðu sinni sem prestar fyrir ástina, þýðir ekki að Susan sé illgjörn ef að hann gerir það. Meina, Tom verður ennþá trúaður og biður til guðs og allt það þó að hann fórni prestinum. En svo getur vel verið að hann geri það ekki og að þau verði bara vinir eða eitthvað álíka! :)
Já djók, ég fór að hugsa….!!!! Gellan hans Jaks er það ekki? :P Það gerist pottþétt eitthvað, Connor og Toadie voru að segja fyrr í þættinum að núna þyrfti Stu bara að finna sér konu! drama, drama, drama :)
Og það er bara kjaftæði af því að Alan vill ekki drepa AM :/ AM er líka að verða bara geðveikur af ofsjónum… þarf á sterkum verkjarlyfjum að halda því að hann er farinn að sjá pabba sinn bara allt í einu og um daginn talaði hann við hann heillengi..!! :/ AM er samt FOXY!!!!! elska hvað hann er mikill töffari í þessari hettupeysu :P
Ég er sko að tala um þessa með munninn… hehehe… æjji hún var með svo samankrepptan munn litla elskan, en það fór henni ekki illa! allavega þá var það hún sem að var með Roger, búin að steingleyma hvernig sú á undan henni var…! Þessi sem að ég er að tala um var líka fyrsta Mindy-in til að vera með Nick! Og gamla Alexandra er nú bara sígild sko og gamli Billy Lewis, sem að var í mörg mörg ár… var þegar Dylan kom fyrst í þættina. Gaurinn sem að lék hann þegar hann skaut Roger festist aldrei hjá...
Já Leiðarljós er uppáhalds þátturinn minn og ég er búin að horfa á hann síðan að ég var 11 ára.. bráðum 8 ár og ég má ekki missa úr þætti…! Tek líka upp þætti sem að ég veit að verða góðir og á þá á spólu og þegar ég verð veik þá tek ég fram spólu með gömlu Mindy og gamla Billy með gömlu Alexöndru! En svona verður maður sorglegur! :/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..