Takk kærlega fyrir að birta greinina mína! :) Danni er fundinn heill á húfi :):) Hann fannst við Hús verslunarinnar síðast liðinn föstudag. Athugul kona hafði séð hann snuðra þar í kring og fann greinina um hann á kattholt.is Danni litli var ansi þjakaður og óhreinn eftir ferðalagið langa og hefur horast nokkuð. Hann er þó allur að koma til og hefur étið og sofið og étið og sofið alla helgina :p Ég vil þakka konunni sem fann hann og Kattholti kærlega fyrir hjálpina. :) Kveðja EmmaEpli