Grafísk hönnun er ofboðslega breitt svið og ef þú hefur áhuga á að mennta þig í því er málið bara að taka góðan grunn, eins og lista- eða hönnunaráfanga. Bara það sem þér þykir skemmtilegast. Ef þú síðan heldur áfram og verður grafískur hönnuður, geturðu unnið við að hanna útlit tímarita, vefsíðna, auglýsinga, umbúða, boðskorta, jólakorta, fyrirtækja, bæklinga, dreifimiða, veggspjalda, bíómynda titla, sjónvarpsþátta titla, bóka, og allt sem augað eygir í raun og veru. Nám í grafiskri hönnun...