Ég var með svona GEÐVEIKT lengi! Fyrst var þetta bara pirrandi en svo frekar sársaukafullt og mjög óþægilegt, síðan ef að ég borðaði eitthvað hart eða seigt fór kjálkinn að festast og var þvílíkt bögg og vont að loka munninum aftur. Ég gerði aldrei neitt, því ég HATA lækna en þetta hvarf eftir LANGAN tíma, en ég mæli samt eindregið með að þú farir bara til heimilislæknis og látir kíkja á þetta fyrst og svo vísar hann þér eitthvað lengra ef þess þarf. Og endilega láttu mig vita hvernig fer! Kv. ekla