Ég var að fá mér unleashed fyrir stuttu og er bara nýbyrjuð að spila hann. Ég er með nokkur vandamál í leiknum t.d. þá snýr fólkið sér alltaf í fullt af hringjum áður en það gerir eitthvað sem er mjög pirrandi. Svo þegar ég fer niður í old town þá er klukkan kannski 4 þegar ég fer, og ég er í old town til svona 9 en þegar ég kem heim aftur er klukkan ennþá bara 4, en samt er fólkið orðið mjög þreytt og svangt…
Svo var ég með einn kallinn í old town og hann bara gufaði upp! Það voru bara hendurnar og hausinn eftir af honum, ekki búkurinn! Ég vissi ekkert hvernig þetta gerðist útaf því að kellingin var að kaupa hund en kallinn var bara eitthvað að skoða eðlur og þegar ég leit næst á hann var hann horfinn. En samt gat hann alveg gert eitthvað. Hann kom reyndar heill aftur heim.
Svo er nýji hundurinn alltaf sí hnerrandi, ég veit ekkert af hverju, svo notar hann aldrei dýraklósettið heldur pissar alltaf á gólfið.
Eina nóttina vöknuðu hjónin við ruslatunnuna, það hafði eitthvað dýr farið ofan í hana og ruslið var farið uppúr… Og hvernig er hægt að losna við þennan skunk sem kemur alltaf í garðinn manns??

Vonandi getið þið hjálpað mér með eitthvað af þessu…