Hæ,hæ ég er soldið ógeðslega, alltof hrifin af strák í skólanum mínum, ég meina ég get EKKI bara látið hann endalaust ganga fram hjá mér í skólanum, án þess að ég geti sagt neitt við hann, ég meina ég bara þori EKKI að segja neitt við hann… Þú veist ef að ég myndi segja t.d. hvað segiru?? Þá er ég bara alltof hrædd um að hann eigi eftir að hugsa…. “gas þessi hóra, viðbjóðslega druslan, reyndi að tala við mig”… Hann er samt ekki þannig, en samt gæti alltaf verið að hann sé þannig þótt hann láti lítið á því bera. Hann er samt ekkert vinsælli en ég, en ég meina ég er ekkert vinsælasta stelpan í skólanum, bara þessi orginal, sem tala við alla, ég veit samt að vinsældin skipti engu máli en samt ég meina ég er í 9unda bekk, og ÞÁ skiptir vinsældin þó nokkru máli!
Ég veit líka að það eru nokkrar, eða bara frekar margar (held ég) miklu sætari stelpur en ég í skólanum, þannig að hann fellur ábyggilega bara fyrir þeim og þar á auki þá veit ég um nokkrar aðrar stelpur sem að eru líka hrifnar af honum!!
Hvað á ég að gera??
-Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá