Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: KB-banka lagið..?

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Gaudeamus Igitur heitir það nú og er stolt og æra okkar sannra menntskælinga, ekki dissa Gaudann.

Re: Tilfiningaleisi

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Uhm… ég veit ekki alveg hvaða hluti af þessu var kaldhæðni, en svona rétt til vara ef þér var alvara, þá má benda á að skóggangur hefur ekki verið löggild leið til hegningar í… jah… háa herrans tíð.

Re: Tilfiningaleisi

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég var bara alls ekkert að leiðrétta þig. Reyndar leiðrétti ég hvorki eitt né neitt. Þar fyrir utan var þetta nú bara létt spaug.

Re: Inch

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hérna Annars eru nú yfirleitt höfð á Íslensku hugtökin “tomma” eða “þumlungur” yfir það sem útleggst svo á útlensku “inch” eins og þú kallar það.

Re: Inch

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Nema hann sé bara fáviti.

Re: Tilfiningaleisi

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Já, bara sorrí, ég sem ekki reglurnar.

Re: Tilfiningaleisi

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Nei, kannski ekki, en þessi stafsetning gerir þig því miður útlægan að eilífu úr mannlegu samfélagi. Þú ert hér með réttdræpur skóggangsmaður.

Re: Dominos! :|

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Snýst allt um nákvæmni maður…

Re: Fólk sem er á móti drykkju

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það fer eiginlega bara eftir aldri og aðstæðum. Mér leiddist aldrei á böllum áður en ég fór að drekka, og meira að segja eftir að ég fór að drekka drekk ég ekkert alltaf á djamminu. Mér finnst fullmikið að mæta fullur á árshátíð í grunnskóla, t.d.

Re: Dominos! :|

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Nú, svo að vinur manns fái ekki aðeins meira en maður sjálfur, dööh…

Re: Forrit til að lýsa upp mynd

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ef þú tókst myndina í of litlu ljósi er það einfalt: Ekki hægt. Það er nær ómögulegt að fá eitthvað út úr filmu sem hefur þegar verið tekin í of litlu ljósi. Þú getur reynt að sjá hvort þú fáir eitthvað, þú getur notað nær hvaða klippiforrit sem er, allt frá iMovie upp í Avid (þekki ekki Windows Movie Maker nógu vel), til að stilla birtustigið, en líklegast er að ef þú færð eitthvað, þá sé það mjög stórkornótt mynd í hálfsvarthvítu sem erfitt er að sjá nokkuð úr. Annars þekki ég ekkert...

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég þekki muninn á lífeyrissjóði og reglubundnum sparnaði. Ég legg líka mánaðarlega í lífeyrissjóð samkvæmt lagaákvæðum um slíkt. Auk þess má vel vera að ég eigi eftir að kjósa að leggja í viðbótarlífeyrissparnað, en ég get haft ýmsar persónulegar ástæður fyrir því að ég vilji ekki spara og manninum kemur það ekki við. Banki, sjálfstæður lífeyrissjóður eða tryggingafélag, ef KB-banki býður það er það bankaþjónusta, þó það kallist ekki bankaþjónusta hjá tryggingafélögum. Það er þjónusta sem...

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég fullyrti ekkert um þennan sparnað, ég minnti bara á að það er alltaf smátt letur, erfðamál var bara hugdetta. Þegar ég segist ekki hafa kynnt mér þetta þýðir það að ég hafi lítið kynnt mér þetta utan þær ótöldu mínútur af lífi mínu sem þessir menn hafa sóað. Það hefur þegar verið reynt þrisvar að sannfæra mig til þess að byrja á þessu og ég veit a.m.k. nóg til þess að vita að ég vil þetta ekki. Það sem ég er að reyna að koma á framfæri hér að það eru alltaf einhverjar ástæður til þess að...

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Mér finnst ég hafa mun meiri rétt á að kalla þessa menn fífl en þú að kalla mig aula. Auk þess kallarðu mig þetta á algerlega röngum forsendum - þeim að mér þyki heimskulegt að leggja í lífeyrissparnað. Hvað svo sem ég kynni að hafa á móti lífeyrissparnaði, sem ég hef þó enga ástæðu til fremur en að hafa eitthvað á móti hverri annarri bankaþjónustu, er það ekki efni þessa korks. Þessir menn eru ekki bara að kynna fyrir mér þjónustuna. Þegar ég segist vilja hugsa þetta, þá þýðir það að ég vil...

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég hef í raun engu að bæta við það sem ég sagði, en mér gremst að þú skulir kalla mig aula þó ég fari aðrar leiðir en þú kýst að fara í langtímasparnaði. Þrátt fyrir allt sem ég var að segja var ég heldur ekki að gagnrýna sjóðina sem sparnaðarleið í korkinum, heldur er ég að gagnrýna þá leið sem farin er í að kynna þessa sjóði. Það væri meira að segja afsakanlegt ef ég hefði á annað borð hætt mér inn í þjónustustaði þeirra, en að vera á hálfopinberum stað eins og innganginum við Hagkaup og...

Re: iPod Mini

í Músík almennt fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Guðvelkomið…

Re: iPod Mini

í Músík almennt fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ef mér skjátlast ekki stendur einhvers staðar á eða í pakkningunum að ekki skuli hafa græjuna lengur en 24 tíma í hleðslu.

Re: iPod Mini

í Músík almennt fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Nei, iMac. Fyrsta varan frá Apple sem bar forskeytið “i-” og upphafið að nýrri öld Apple-fyrirtækisins. Hann hefur reyndar þróast meira en lítið síðan fyrsti iMac-inn kom. Skrýtnasti útúrdúrinn að mínu mati væri sjálfsagt iMac G4 en þeir sem þekkja til muna eftir tölvunni sem leit út eins og sambland af lampa og tölvu. Þrátt fyrir undarleik þeirrar tölvu er hönnunin á margan hátt vanmetin, mér þótti hann alltaf svo æðislegur. Ef þú varst ekki biðja um þetta svar, þá biðst ég forláts og þakka...

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Já, það er líka að fleiri hlutum að huga áður en maður skráir sig í eitthvað svona. T.d. er mismunandi með erfðamál, hvort erfingjar þínir eða lífeyrissjóðurinn hirði peninginn ef þú dettur niður dauður 59 ára gamall. Ég hef reyndar ekki kynnt mér þetta nógu vel sjálfur, en mig grunar að hér sé eitthvað sem sölufulltrúarnir segja manni ekki að þeim óspurðum. Það er alltaf eitthvað bogið við þessa banka.

Re: iPod Mini

í Músík almennt fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Jújú. Ég má nú reyndar til með að minna á að hvorki iPal né iTrip eru frá Apple, en það er útúrdúr. Svo má reyndar líka nefna að iTrip er ólöglegt hér á landi, en ég geri ráð fyrir að lögreglan sé ekkert að hafa fyrir því að vakta huga ;) Hitt er annað að það sama hefur verið að koma fyrir mig með iPod mini. Ég hef gert þetta nokkrum sinnum (tæma iPodinn eins og mögulegt, stinga honum í samband, setja á hold og taka aftur af og restarta svo með því að halda inni menu og select - stendur allt...

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Haha, já, það hljómar vel.

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fer allt eftir því hver þú ert…

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Mér er það nú ekkert sérstaklega kappsmál að vinnuveitandinn minn tapi - eða græði, ég bara lít til þess hvernig ég græði - eða ekki. Hitt er annað að líta má til annarra leiða til að spara og ávaxta pening og athuga hvort þetta sé raunverulega besti kosturinn. Vextirnir eru nefnilega ekkert sérstaklega háir í þessum sjóðum á miðað við ýmsa aðra möguleika. Annars minni ég á að þetta nöldur er ekki um hvort viðbótarlífeyrissparnaður sé góður kostur eða ekki, ef svo væri hefði ég póstað í...

Re: Viðbótarlífeyrissparnaður...

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég hef mínar eigin leiðir til að spara, leiðir sem ekki eru bundnar til 50 ára eða hvað það nú var. Auk þess á þetta fólk bara ekkert með að áreita mig þar sem ég geng í gleði minni með ekkert til að trufla mig… nema heimska bankastarfsmenn. Alveg sama hvað varan er góð.

Re: Wallpaper

í Tilveran fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Wallpaper frá macserialjunkie.com
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok