það er varhugavert að einkavæða heilbrigðiskerfið af þeirri grundvallarástæðu að lækningar eru ekki sambærilegar við hverja aðra vöru á frjálsum markaði. Lækningar snúast um að lækna fólk af misalvarlegum kvillum og meinum sem hrjá það, það gilda einfaldlega ekki sömu lögmál um slíka starfsemi og að velja á milli vídeóleigna. Síðan hefur það sýnt sig, á norðurlöndunum og í bretlandi þar sem gerðar hafa verið tilraunir með einkavæðingu og útboð þjónustu, að á því tapa allir hlutaðeigandi,...