Litla Hraun. Þetta er stærsta fangelsi landsins og þarna eru allir síbrotamenn, barnaníðingar og morðingjar landsins geymdir. Menn tala um fangelsi sem einhvers konar stofnun til að koma mönnum á rétta braut, en það er algjört kjaftæði. Menn hérna eru að fremja glæpi aftur og aftur og það er varla búið að loka klefanum þeirra þegar kvikindin mæta aftur á gamla heimilið sitt. Fangelsi á að vera refsing, en hér er næstum því eins og þetta sé hótel. Fangarnir hafa aðgang af tölvum með nettengingu, sjónvarpi og allskonar munaði. Þeir fá meira að segja að spila Playstation og reykja í klefum sínum! Ég heyrði viðtal við einhverskonar fangelsisstjóra hér á landi í útvarpinu um daginn og hann talaði eins og það væri markmið hans að gera föngunum lífið sem auðveldast meðan á dvöl þeirra stendur. Ef ég mætti ráða væru fangelsi alvöru refsing! Ég myndi innleiða pyntingarbekki, láta fanga dvelja í pínu litlum klefum sem þeir þurfa að standa bognir í baki í og sofa á hörði steingólfinu. Svo þætti mér rétt að ef þetta væru nauðgarar ættu að vera sendir menn í það að gera nákvæmlega það sama við þá og þeir gerðu við fórnarlömbin sín. Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn! Þetta á jú að vera refsing!

Fyrir nokkrum árum varð ég fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að vera send/ur á BUGLið. Þetta var helvíti á jörðu. Þarna var farið með mig eins og glæpamann bara vegna þess að ég hef meiri innsýn á hlutina í kringum mig enn annað fólk. Er það glæpur að sjá það að heiminum sé stjórnað af Illuminati og Davíð Oddson sé strengjabrúða satanista? Heimurinn gengur fyrir svartagaldri, svoleiðis er þetta bara. Fyrir þetta var ég lokuð/lokaður inni og gefinn skotstaður á mér…þeir fengu tækifæri til að þagga niður í mér því ég uppljóstraði leyndarmál heimsins. Það endaði þannig að ég flúði og gisti í undirgöngum í grafarvoginum, löggan var send á eftir mér og mamma fór að gráta.

Punkturinn minn með þessari grein er sá að það er farið verr með “okkur geðsjúklingana” eins og við erum kölluð en morðingja og nauðgara!