Mér finnst persónulega að Final Fantasy leikirnir hafi misst allan persónuleika, ég byrjaði á því að spila númer 7 og 8 og fór yfir í 9 þegar hann kom út, en ég varð örlítið svekktur þegar ég keypti númer 10, mér fannst eins og ég væri farinn að spila eitthvað allt annað en FF því það var einfaldlega eitthvað gjörbreytt við hann. En ætli ég sé ekki einn um þetta….
Málið með þessa krakkafjanda er bara að þeir hafa fengið það í gegnum hausinn að þeir séu “aðalmaðurinn” en geta ekki tekið afleiðingum þar sem þeir hafa ekki heilann í það að spá lengra en: “Hei, þú fokkaðu þér!!” og áður en þeir vita af stendur tvöfalt stærri manneskja með morðglott fyir framan þá. Þá er það annaðhvort: “Sorry, ég var bara að djóka.” eða “Hvað viltu, aulinn þinn?”. ef það fyrra kemur upp og maður fyrirgefur þeim, öskra þeir eitthvað óskiljanlegt á mann úr 100 metra...
Lemmér a' giska: “Sa” er sama tilfelli og “Ki”, þar sem boginn á samkvæmt stafsetninga/réttritunarreglum ekki að vera til staðar? Er það virkilega þannig samkvæmt Japönskum stafsetningareglum?
sama með mig og grenadier, excel saga, fruits basket, I-My-Me-Strawberry-eggs og ég ætla nú ekki einu sinni að nefna þessi fífl sem hafa ekki fyrir fleiri en 4 þáttum
Ég held samt einhverra hluta vegna að þetta sé allt einhver uppspuni hjá þessu sama liði og heldur því fram að á Area 51 hafi verið byggð 72. hæða bygging ofan í jörðina og að bandaríkjamenn vinni þar með hjálp geimvera að því að þróa nýjar hernaðarvörur.
Ég vil ekki rústa partýinu hjá neinum, en sú hugsun að einhver samtök stjórni heiminum án þess að einhver fatti það, er ómögulegt. Nema þá að hver einasti stjórnmálamaður í heiminum sé með í því, sem er nú heldur ólíklegt…..En hver mótar sinn hug…..
Wicca er ágætlega gamalt ef þú spyrð mig, þetta er reyndar búið að þróast og þess háttar í gegnum aldirnar og ef mér skjátlast ekki, að þá er þetta ekkert nema nútímalegt heiti yfir “witchcraft” sem er minnir mig búið að vera uppi síðan fyrir Krist. En þetta er víst bara það sem mínar heimildi vísa til…
Þetta er víst eina leiðin til þess að framleiða marga þætti af einhverju. ÉG held að etta hafi verið gert upphaflega til þess að draga úr kvörtunum yfir því hvernig hlutirnir enda….eða eitthvað svoleiðis. Ekki getið þið sagt með fullri samvisku að þið séuð öll sátt við að meirihlutinn af öllu skemmtilegu anime endi á 12. - 24. þætti?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..