Ég sat heima allar nætur í nokkra mánuði og stúteraði Photoshop alveg í þaula. Síðan setti ég upp vefsíðu með mínum myndum og sendi umsókn á nokkur tölvufyrirtæki og fékk vinnu fyrir rest. Ég lít annars á þetta sem ótrúlega heppni að komast svona inn án þess að geta sýnt fram á nein próf eða svoleiðis. Ráðleggingar? Ég held það þýði ekkert að ætla að vera góður í öllu heldur er málið að setja sér skýr markmið um einhvert ákveðið sérsvið og fylgja þeim. Það er alltaf vinna fyrir færa menn þó...