Ég er 14 ára og þarf ekki að sofa í níu tíma því ég er hætt að stækka. Það er líka ómögulegt fyrir mig að sofna fyrir tólf. Það sem ég geri eftir tíu get ég oftast gert fyrr en ég get líka alveg gert það seinna. Já,það er kannski hættulegt að vera úti svona seint hvort sem maður er þrettán eða þrítugur en af hverju mega þrítugir þá vera úti? Vegna þess að það er ekki hægt að banna “fullorðnum” að vera úti. En af hverju er hægt að banna unglingum það. Það er alltaf litið á unglinga sem óæðra...