Svona til að fyrirbyggja allan misskilning, þá höfum ég eða aðrir í litboltafélaginu ekkert á móti Rec-ball né Moto-Cross. Við allir, eða næstum allir, sem byrjuðum í litbolta upp úr 2000 höfðum fyrirmyndina af rec-ball í USA. Síðan þegar við byrjum að stunda þetta, læra betur á sportið, reynum að keppa í liðum hver við annan, þá sjáum við að það er ekki hægt að stunda rec-ball, þannig að það sé skemmtilegt. Það vantar nokkra hektara af góðum skógi, með brekkum, moldarbörðum, föllnum...