Ég heyrði að Skeljungur hefði gefið þá skýringu að síðast hefði verið keypt Avgas fyrir rúmu ári og að sá forði sé búinn þannig að þessi hækkun á að vera í samræmi við hækkunina á því eldsneyti sem núna er verið að kaupa. Annars finnst mér þetta alveg fáránlegt, þetta var nógu dýrt fyrir, hvað þá núna. Svo heyrði ég að ekki væri lengur hægt að fá lán með því að taka veð í húsi sem einhver býr í, verður að vera sumarhús eða eitthvað álíka :(