Harðsperrur, eða DOMS (delayed onset mscle sorness) koma fram 24 til 28 tímum eftir æfingu. Ástæða DOMS er fyrst og fremst skemmdir á vöðvafrumum. Oftast verða skemmdir á vöðvafrumunni vegna skemmda á vöðvahimnu. Við það flæðir innihald frumunnar út, t.d. ensím. Liðleiki sem slíkur eykur aðgang blóðsins að vöðvanum. Því er blóðrásarkerfið sneggra að fjarlægja úrganginn eða skemmdu efnin. Teygjur, fyrir eða á eftir æfingum, auka lítið liðleika og hafa lítil áhrif á DOMS, heldur er það...