Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hjálp (5 álit)

í Kettir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Vinkona mín er að fara fá sér 9 vikna læðu og hún er með annan kött á heimilinu, ca 6 mánaða högna og hann er ógeldur. En við vorum að pæla hvort það væri hættulaust fyrir kettlingin að búa með hinum kettinum, eða þarf hann að vera geldur? Bætt við 31. maí 2009 - 20:48 Og já, gleymdi að spurja, veit einhver hvað það kostar að gelda högna?

Pæla í tattúi (3 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Sæl, ég er búin að vera pæla í að fá mér tattoo sem byrjar hjá hálsinum og niður á handlegginn, er samt ekki alveg búin að ákveða hvernig en e-ð í þessa átt. Og ég var að velta því fyrir mér hvaða tattúverara þið mælið með? :) Takk takk

Kyn kettlings (10 álit)

í Kettir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Ég er að reyna finna út hvort kettlingurinn sem ég fæ sé læða eða fress. Kettlingurinn er alveg eins og mamma sín, hún er alveg svört svo er pabbinn svartur og hvítur. Konan sem á kettlingana getur nefninlega ekki séð kynin á þeim því þeir eru svo loðnir :)

Óska eftir kettlingi helst loðnum :) (0 álit)

í Kettir fyrir 15 árum
Óska eftir loðnum og helst bröndóttum 8 vikna kettlingi :) Bý í Keflavík :) - Elín

iPod (10 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
Hvernig flytur maður lög af iPodnum yfir í tölvuna? Ég var með eitthvað forrit sem gerði það, man bara ekkert hvað það heitir, einhver sem getur sagt mér hvað það heitir ?:D

Boðslykill á rtorrent (29 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ekki getur einhver gjafmildur hugari gefið mér boðslykil á rtorrent.net ?:)

Urr (9 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Afhverju get ég ekki sent inn myndir! Kemur bara eitthvað “The connection was reset” buull..

The Killers Cousin (1 álit)

í Bækur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Veit einhver um einhverjar glósur úr þessari bók? Vantar hrikalega að fá glósur úr henni! Takk takk

Hehee, bjánalegt (11 álit)

í Rómantík fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Semsagt, ég er 16 ára stelpa og var á föstu með stráki alveg í dágóðan tíma (1 ár) og við vorum saman á næstum hverjum einasta degi. Svo núna erum við hætt saman, það er í góðu lagi og ég er búin að finna mér annan sem ég er alveg hrifin af en við erum bara að dúlla okkur, en þarsem það er hellvíti langt síðan ég var að dúlla mér, þá veit ég ekkert hvernig ég á að haga mér og mér líður hálfbjánalega því ég kann bara að haga mér eins og ég sé með þessari manneskju og við séum búin að vera...

Handsápa (11 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Er að gera verkefni fyrir skólann minn og mig vantar hrikalega að vita hvað handsápa kostar, einhver ódýr sápa helst :) Takk Takk Bætt við 1. nóvember 2007 - 14:56 Og ef þið vitið kannski hvað klipping á minna en axlarstuttu hári kostar:D

Plokkun og litun (5 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Veit einhver hvað það kostar ca. mikið að fara á stofu og láta plokka og lita augnbrúnirnar? :)

Halló (77 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ég verð bara að kvarta smá, ég þoli ekki þegar ég er ekki búin að hafa neitt að gera, búin að skoða allar síður sem mögulega hægt er að skoða og allt inná huga.. En samt langar mig að skoða meira en það er ekkert eftir að skoða og er byrjuð að skoða það sama aftur. Þetta er svona þannig dagur hjá mér í dag:) Einhver annar lent í þessu?

Muse (7 álit)

í Músík almennt fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Einhver sem veit nokkuð um að Muse sé að koma til landsins? Annars hef ég heyrt eitthvað rugl..

ódýr sími (3 álit)

í Farsímar fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Veit einhver hvar ódýrasti sími landsins er seldur? Helst á 1000 kr. eða minna

Hmm? (9 álit)

í Skóli fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég skil ekki alveg hvað “samþykkt í öðrum skólum” þýðir, getur einhver sagt mér hvað er verið að meina með því?

Daft Punk (5 álit)

í Raftónlist fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég hef dýrkað Daft Punk alveg síðan ég heyrði fyrst í þeim, en hef aldrei farið á tónleika með þeim. Veit einhver ykkar um að þeir komi til Íslands bráðlega og haldi tónleika? Mig minnir að þeir hafi komið áður.

Asnalegt (119 álit)

í Rómantík fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég hafði ekki hugmynd um hvar ég gæti sett þetta, svo ég prófa bara hér. Okei, það er þannig að ég er ekki búin að hafa neina lyst fyrir mat síðasliðna viku/r. Ég veit ekki um að það gæti verið það að ég og kærastinn vorum að hætta saman fyrir 2 vikum eða svo. Í hvert skipti sem ég er ógeðslega svöng og fer fram og ætla fá mér eitthvað að borða, þá bara missi ég matarlystina við það eina að finna lyktina af því, og ég þoli þetta ekki! Er búin að mjókka frekar mikið miðað við ekki það langan...

I-Doser? (90 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég hef heyrt útum allt að þetta sé alveg hættulaust, en svo núna var ég að heyra um einhvern strák sem lenti uppi á spítala útaf einhverjum af þessum Dose-um.. Kannski var það bara lygasaga veit ekki, en er einhver sem veit um einhvern sem hefur lent í einhverju svona? Því þá ætla ég bara að eyða þessu beint úr tölvunni minni :)

Tívolíið á Íslandi (14 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Er einhver hér sem veit hvenær tívolíið kemur til landsins? Langar allsvaðarlega að vita það :)

Íslenska Tattoo ráðstefnan (6 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 12 mánuðum
Hvað svona nákvæmlega er að gerast þar? Bara verið að sýna fullt af tattoo-um eða?:) Hef aldrei farið á svona áður og veit ekkert um þetta.

Minnka myndir (2 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 1 mánuði
Getur einhver sagt mér hvernig maður minnkar myndir í Photoshop, það er alveg ómögulegt að gera það í paint. Bætt við 9. apríl 2007 - 20:22 Skiptir engu! Ég fann það:)

Reið! (8 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 17 árum, 1 mánuði
Afhverju get ég ekki sent inn myndir! Það kemur bara eitthvað Page loading time.. blabla! Pirrandi, er einhver annar með þetta vandamál?

Hehe (8 álit)

í Myndlist fyrir 17 árum, 1 mánuði
Pínu kjánaleg spurning, en ég hef verið að spá; Hvort setur fólk nafnið sitt á myndirnar (sem það var að teikna) þegar það byrjar að teikna eða þegar myndinni er lokið..?=] Bætt við 18. mars 2007 - 18:57 Nafnið og dagsetninguna meinti ég:)

Man einhver? (7 álit)

í Teiknimyndir fyrir 17 árum, 1 mánuði
Þessi þáttur eða myndir voru um litla önd sem missti foreldra sína og bjó þess vegna hjá moldvörpu sem var blind. Og mig minnir að það hafi einhver vondur kall alltaf að reyna ná í öndina.=)

Hár (24 álit)

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Er einhver sem veit hvað hárlenginar kosta ca. mikið?:)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok