Gott framtak að fara af stað með umræður um reglugerðina. Ég vil fá aldurstakmarkið lækkað fyrir þá sem spila, það getur verið óbreytt varðandi eign á merkjara en er nauðsynlegt að lækka ef við eigum að fá einhvern möguleika á að fjölga og dafna. Ég sting upp á 13 ára aldurstakmarki fyrir þá sem vilja koma og spila og leigja sér búnað, þeir eru jú inni á lokuðu leiksvæði þar sem við höfum strangar reglur um meðferð merkjara og þeir fara ekki með merkjarann með sér. Kveðja Caviar.