Ef hann er að sýna núna merki um að vilja umgangast hana að eigin frumkvæði - þá er það vonandi merki um þroska. Eins og þetta hljómar fyrir mér er hann ungur og óþroskaður faðir…en mundu að batnandi mönnum er best að lifa. Vonandi verður þetta byrjunin að farsælum samskiptum hans við dóttur sína - þú mátt vera viss um að það er eitthvað sem er þess virði.