já vá það var fullt af svona auglýsingum um “dúkkur sem eru alveg eins og alvöru börn!” á cartoon network.. var alltaf að horfa á það hérna í den.. ég man eftir babyboninni sem frænka mín átti, hún var með bleik augu (einhver fékk þá æðislegu hugmynd um að naglalakka á henni augun) frekar krípí, og svo var hún eiginlega stífluð af sykri þar sem það var alltaf verið að gefa henni djús og kók og það þornaði alltaf inní henni, samt ýkt fyndið þegar hún grét svörtum kók tárum útum bleiku augun.....