var að fara í kaffi áðan í vinnunni og fer inná kaffistofu að ná í kortið mitt, þegar eg kem fram eru einhverjar litlar stelpur að suða um að fara á klósettið.
og ég sýni þeim hvar það er og þær fara þangað og ég ekkert að pæla í því meir.
síðan er ég að labba frá kassanum eftir að hafa keypt mér eitthvað að éta þá heyri ég einhverjar tvær stelpur vera að hvísla þær fóru bara inn á klósett og þúst með dótið og… og svo þagna þær þegar þær sjá mig.

þannig að ég fer og stend fyrir utan hurðina á klósettinu og hlusta á þær ,,settu þetta bara þarna - þær spurja ekkert - þú segist bara vera í þykkum buxum" og svo opnast hurðin.

og ég svona, geðveikt afslöppuð.
Jæja er verið að stela?

og þær eitthvað.. “ég er ekki með neitt.. blabla” og þar sem ég sá ekkert á þeim svona þá ákvað ég að láta þær labba aftur inn í búð og fylgjast mjög vel með þeim.

Og þegar ég kem fram sé ég að ein sú minnsta er að hlaupa út úr búðinni, þannig að ég, í því fína formi sem ég er í, hleyp af stað, kasta rúnstykkinu mínu í samstarfsmann og elti hana út.

Þegar hún sér að ég er svona u.þ.b. að ná henni stoppar hún, tekur lakkrís dúndur upp úr vasanum og réttir mér það og eikkað “fyrirgefðu”
Og ég svona gríp í öxlina á henni og öskra framan í hana: ÞÚ SEGIR EKKI BARA FYRIRGEFÐU, ÞÚ STELUR EKKI ÚR FOKKING BÚÐINNI
Og já hún fór að grenja, og hún eikkað vælandi um að systir hennar hafi látið hana gera þetta og blabla og ég bara neinei vinan þú kemur með mér, toga’na inní búðina, fer á kassann þar sem þær eru hinar og yfirmaður minn kemur og dröslar þeim inná skrifstofu, og jesús þær voru með kjaft.
Eldri systir þessarar litlu sagði: ,,ég var ekkert að stela!!” vildi bara kenna henni um.

Ömurlega systir, en litla stelpan var frekar lítil og eg trúi ekki að þetta hafi verið hennar hugmynd. Og ja apparently var hún mjög mikið að ljúga þegar hún sagðist ekki hafa verið að stela, þar sem dótið sem kom uppúr vösunum á þeim fyllti eiginlega heila körfu, þó að það hafi bara verið nammi.

En já svo kom löggan og talaði við foreldrana og alles.. og þau urðu nottla brjál.
Svo var yfirmaðurinn minn að segja mér að henni hafi fundist þær grunsamlegar þarna eftir að ég hljóp út en hugsað: það getur ekki verið.. þær eru svo litlar

En djöful er gaman að bösta svona litla krakka við að stela - maður fær allavega ástæðu til að öskra framan í krakkana sem eru með kjaft.
Og þó að þetta hafi nú bara verið nammi, þá er þetta samt peningur. Líka bara útaf þær voru með svo mikinn kjaft um að þær væru ekkert að stela, þá er svo gaman að ná sér niðri á þeim.
Kannski maður gerist lögga some day, þá er eins gott að passa sig! You'll never know what I'll do with handcuffs.

Allavega langaði bara að deila þessu skemmtilega mómenti, eða not skemmtilega fyrir þær - en ég meina.. þeim að kenna að reyna að stela úr Bónus!
~bollasúpa