Földun (e. convolution) er margfeldi styrkleika tveggja hljóða (mótunarbylgju og burðarbylgju) í tíðnirúmi. Útkoma úr margfeldinu mótar tíðni burðarbylgju. Földun virkar eins og sía á styrkleika sem er lágvær eða ekki til staðar í öðru hvoru hljóðinu, en magnar upp sameiginlegan styrkleika. Útkoman verður því merki þar sem sameiginlegir eiginleikar hljóðanna hafa mikil áhrif. Földun virkar best þegar inntakshljóðin eru eðlislík, þ.e. hafa jafnan eða svipaðan styrk á sömu tíðnum. Ef annað...