Ég meina þú komst á hjóli á ágætri ferð og skallaðair steinvegg!! Þetta var pottþétt mjög vont!! En hefði verið miklu verra ef þú hefðir veið hjálmlaus!!
Þá skalltu bara leita aðeins betur. Ég er viss um að þú fynnir hjálm sem að passar fullkomlega með því að fara bara í búðirnar og máta. Síðan geturu stillt alla hjálma þannig að þeir passa á hausinn á þér.
Endilega! Mér fynnst að við ættum að reyna að fá stráka hérna til að nota hjálmana meira! Vegna þess að þetta er svo sjálfsagður öryggisbúnaður! Ég veit ekki hvað oft hjálmurinn hefur bjargað lífi mínu. En það er oftar en einu sinni og miklu oftar en tvisvar….
Hér er eitt dirt jump hjól til sölu: http://www.hugi.is/hjol/threads.php?page=view&contentId=5984896 Þetta er mjög flott byrjenda hjól og einnig gott fyrir lengra komna. Það er líka á flottu verði!!! Láttu í þér heyra ef að þú hefur áhuga.
Hvað villtu fá fyrir hann?, hvaða árgerð er hann?, hversu mikið notaður?, hvað er headtuban á honum löng?, Og á hvaða hjóli var hann (ef hann er ekki nýr)?
Ég veit nú ekki hvernig þeir eru. En mér fynnst þetta ekki mikill peningur. En fáðu þér frekar þennann: http://www.chainreactioncycles.com/Models.aspx?ModelID=3442 Ég veit að hann er góður!
Sorry en þetta er ógeðslegt svæði. Við erum fyrir löngu búnir að skoða þetta. Það er alltof dýrt að opna lyftuna fyrir þetta, það þarf alltof mikla vinnu í að ggræða upp landið til þess að það sé eitthvað vit í því að setja hjóla svæði þarna. Þetta er nefnilega BARA grjót. Og það eru BARA litlir oddhvassir steinar þarna sem að fara ógeðslega illa með hjólin og rider-inn sem að dettur þarna. Ég er búinn að skoða allt svæðið þarna og hef engann áhuga á því að eyða neinum frekari tíma í það! Bjarki.
Já takk. Þetta verður gaman! Og þó að maður þurfi að vaka eina og eina nótt þá drepst ég varla á því. Ég hef nú oft vakað um nætur út af minni ástæðu….
Sé til hvort ég komist. Ég skal samt reyna ef að veður verður gott og aðstæður leyfa. Ég var nefnilega að eignast dóttur sem að þarf að hugsa aðeins um. Annars skal ég hugsa til ykkar.
Ég sé ekkert að því þar sem að metallica er með frekar fjölbreyttan tónlistar stíl. En er þá allt í lagi að hafa 3 teknó lög í röð í einu video-i? Ég vel persónulega miklu frekar Metallica! Og fyrir utan það hvaða máli skiptir þetta? Er ekki aðalatriðið að hjólamenskan sé í lagi? Og að video-ið bjóði upp á einhvað meira en 18 tilraunir af 1 droppi? Og fyrir utan það hvað ert þú að skipta þér af þessu? Þetta er hans lagaval á hans eigin video-i…… Ég gæti haldið lengi áfram en ég bara nenni...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..