Flest okkar hafa einhvern tíma á ævinni velt fyrir sér tilgangi lífsins. Stundum virðist allt vera svo tilgangslaust. Dalai Lama segir að tilgangur lífsins sé að finna lífshamingjuna. Það hljómar mjög skynsamlega. Hver vill ekki vera hamingjusamur! En við erum oft að skella skuldinni á eitthvað sem hindrar okkur í að vera hamingjusöm. Við getum ekki verið hamingjusöm fyrr en við höfum eignast meiri peninga, fleiri vini, fengið skemmtilegri vinnu eða orðið ástfangin, orðið heilbrigð og svo...