Hæ takk kærlega fyrir að svara mér og ég ætla að segja þér aðeins frá henni. Hún er 13 að verða 14 ára og mun passa fyrir svona kvöld og kvöld og um helgar kannski, sem sagt enginn fastur tími. Ég er alveg sammála þér með að ungar barnapíur eigi ekki að fá meira en dagmömmur en það sem nagar mig er að þessar stelpur fara oft að passa til þess að safna sér fyrir einhverju og margar þeirra þora ekki að segja neitt þegar verið er að semja um laun. Ég passaði þegar ég var ung og ég þagði bara og...