Ehm, kjánahroll hvers vegna? Það er afar líklegt að ef þú ferð að drekka kaffi einhvern tíma, eins og nokkra bolla yfir einhverja vikuna sem þú ert mjög þreyttur, þá eru einfaldlega miklar líkur á því að þér fari að líka bragðið. Það kemur þroska nákvæmlega ekkert við hvenær eða á hvaða aldri þú kýst að byrja að drekka kaffi. Ef þú þá vilt byrja á því. Þú ræður því sjálfur en eins og ég segi, kemur þroska ekkert við.