Þetta var sérlega hressandi fyrir utan það þegar einhver ógeðslega full geit skvetti hálfri bjórflösku yfir mig af því henni fannst það svo fyndið. Annars mjög gott, hefði samt viljað sjá betri mætingu.
Frábær grein nafni, besta dnb greinin sem hefur ratað hingað inn í langan tíma. Ég verð samt að segja að áhugi minn á dnb verður minni með hverju árinu. Þetta ár olli mér miklum vonbrigðum og var það lang versta síðan ég byrjaði að hlusta á drömmen fyrir 10 árum síðan. Stemmningin er annað hvort í þessum rólegheita djúpa minimal fílíng eða þá útúr tjúnaða unglinga fílíng þar sem allir keppast um að fylla upp í öll tíðnisvið frekar en að gera góða tónlist eins og Kalli hefur bent réttilega á...
Ég held að það væri málið. Þú sjálfur, Exos, Ghozt og/eða Brunahaninn meðal annarra gætuð farið í þetta. Hvað er í boði, kostir og gallar, hvað kostar o.s.frv.
Nákvæmlega. Maður kaupir kannski eitt lag af beatport en það passar ekkert við fílingin í restinni af lögunum sem maður á eftir að skrifa eða maður hefur aldrei skrifað lag með þessum artista. Þá er frekar pirrandi að þurfa að skrifa einn disk undir þetta eina lag (sem ég geri nánast aldrei). Með Serato er þetta ekkert vesen. Hvað kostar annars serato í dag?
Þetta er svo ótrúlega satt sem Kalli er að segja þó ég sé ekki sammála skoðunum hans á dubstep að öllu leyti. Þegar ég heyrði dubstep fyrst þá var ég ekki að fíla það neitt sérstaklega vel. Svo komu nokkur skemmtileg lög eins og The Bug feat. Flowdan - Stampin (aka poison dart) Rustie - Jagz the smack Joker - Gully brook lane (sem einblínir kannski svolítið á tíðnisviðið í miðjunni :) Ég verð samt að viðurkenna að mér finnst Pro nails langt frá því að vera eitthvað leiðinlegt. Það eru bara...
Ég er ósammála þér Kalli. En þetta er jú drullu leiðinlegt lag. Tékkið frekar á þessu með sama gaur: [youtube]http://www.youtube.com/watch?v=22gYqY4WIzM
http://www.myspace.com/hudsonmo - Ef þú misstir af Hudson Mohawke kvöldinu um daginn þá mæli ég með að þú tékkir á þessu. http://www.beatport.com - tékka á topp10 listum yfir drum n bass og dubstep. http://www.dubplatedigest.net/ - Hérna er svo ágætis síða þar sem hægt er að downloada dnb mixum. http://www.dogsonacid.com/ - Líklega stærsta dnb forumið. Upp á síðkastið hefur þessi síða versnað mikið og þetta eru aðallega einhverjir hasshausar að drulla yfir hvorn annan. En það detta oft...
Saxon massive!! Annars finnst mér Eastern Jam besta dubstep lagið þeirra hingað til. Ég held samt að þeir séu alveg búnir, því miður. Farnir að gera lög fyrir Rihanna og fleira popp sull held ég.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..