Þegar þetta er skrifað er ég nýkominn úr innkaupaleiðangri hjá Hókus Pókus. Þessi ágæta, en jafnframt dularfulla, verslun býður upp á prýðis “afgangs” búninga frá Nato (anno 1987). Gallarnir eru nær ALVEG eins og þeir sem notaðir eru í Kópavoginum, nema hvað þeir likta ekki af svínaskít og eru ónotaðir. Settið kostaði um 2.200kr ef ég man rétt. Sömuleiðis eru til á sama stað aðeins betur sniðnar buxur í camo-litum, og stuttermabolir, vesti og þýskir herjakkar. Þau eru þó nokkuð hærri í verði...