Þar sem verslunin Arma Supra virðist búin að leggja upp laupana þá fæ ég ekki betur séð en maður verði að kaupa paintball-fatnaðinn í gegnum vefverslanir.

Ég hef verið að skoða vefinn og fann síðnua www.afmo.com. Hún er skýr og vel upp sett, með myndum af öllum varningi.

Ég hafði hugsað mér að panta eitthvað af vörum frá þeim, og hvet aðra til að skoða síðuna og hafa samband við mig í asgeiri@mbl.is og þá getum við kannski slegið saman í púkk og fengið einhvern afslátt af sendingarkostnaðinum.

…eða er einhver betri leið til að kaupa sér svona fatnað?