Mér finnst gaman að menn séu að ræða Músíktilraunir og gott að menn eru ósammála. Mig langaði aftur á móti að leiðrétta þann leiða misskilning sem ég sé stundum að það hafi ekki verið neinn “málmhaus” í dómnefndinni. Ég held nefnilega að það hafi aldrei verið eins vel valið í dómnefnd hvað varðaði tónlistarsmekk: málmhaus, harðkjarnagaur, pönkgella, poppbolti, nýbylgjuhaus, rokkari og svo ég, gamli maðurinn, sem hlusta á allar gerðir tónlistar (er núna með Dopesmoker með Sleep í eyrunum - er...