Til glöggvunar: Nirvana skiptir ekki máli NIRVANA er ofmetnasta rokksveit sögunnar og lagasmiður hennar, Kurt Cobain, er ofmetnasti lagasmiður sem dægurmenningin hefur getið af sér. Þetta segi ég ekki af rætni, eða þá til að stríða þeim þúsundum gítarleikara sem taka sveitina sér til fyirmyndar í einföldu bílskúrsrokki. Nei, ég vil meina að þetta sé einföld staðreynd sem hægt er að styðja með rokkmenningarlegum dæmum. Áhrif sveitarinnar, sem lék melódískt gruggrokk, verða þó seint ofmetin....