Enn ein hörkuskákin var tefld í fjórðu umferð Olís-einvígisins. Hannes hafði hvítt, fékk ágæta stöðu og fórnaði biskup í 16. leik. Movsesian þáði ekki fórnina, en sætti sig þess í stað við að tefla áfram með peði minna. Hugsanlegt er að Hannes hafi átt sigurmöguleika í þeim flækjum sem upp komu, en það var hins vegar Movsesian sem tókst smám saman að snúa taflinu sér í hag og sigra í 35 leikjum. Staðan er nú 3,5-0,5 fyrir Movsesian. Fimmta skákin fór fram,föstudag, en þá stýrir Hannes svörtu...