Ég sakna Tvíhöfða og hans Freysa nú þegar. Ætli Síminn sjái sér leik á borði og stofni nýja rokkstöð? Þeir eiga nú Skjá 1, kominn tími á nýjan miðil frá þeim? Þeir eiga auðvitað fullt af peningum og myndu ekki neyðast til þess að spila einungis tónlist sem Skífan flytur inn. Væri ekki bara ágætis hugmynd ef að Síminn myndi kaupa Radíó-Reykjavík, greiða upp skuldir, kaupa nýjan stúdíó búnað og hefja útsendingar sem fyrst?