Ég var að sjá viðtal við þennan mann í “Ísland í dag” og ég verð bara að segja að ég vil alls ekki sjá þennan mann koma hingað.

Hann virkaði sem mjög leiðinlegur og ókurteist einstaklingur í þessu viðtali, og í stað þess að svara spurningunum á eðlilegan hátt þá var hann alltaf að snúa út úr og byrja að tala um eitthvað annað.

Hann vildi ekki segja neitt sérstakt við íslensku þjóðina eða tjá sig um það hvort hann vilji búa hérna í framtíðinni. Frekar augljóst að mínu mati að hann vilji bara nota þessa þjóð sem vopn í baráttu og svo snúa baki í okkur.

Ég er annars ekkert að segja að ég sé á móti því að þessi maður verði frjáls, ég bara vil ekki að hann fái að koma hingað þegar að mínu mati er hægt að fá mikið betri innflytjendur en hann hingað.