Já takk, Hot Chip á diskinn minn. Eðal flott band, skemmtilegir live. Man eftir að hafa séð þá performera í tjaldi á Big Chill tónlistarhátíðinni 2004, vissi ekkert hverjir þetta voru, litu út fyrir að vera nörda útgáfa af Kraftwerk :)
Ég er alveg sammála Hr. Goodman í þessu. Finnst banner vera afskaplega óþarfur hlutur á áhugamálum. Flestir eru að keyra í það hárri upplausn að bannerinn verður bara lítill. Mesti partur síðunnar er tekinn upp af whitespace. Svo varðandi áhugaleysið, þá eru hér aðilar að pósta músík og lögum sem þeir hafa gert, sem er bara flott framtak. Þær greinar sem okkur hér hafa borist eru því miður oft því marki brenndar sem aðrar greinar á öðrum áhugamálum eru, semsagt hroðvirknislega unnar og bara...
Ef þú munt nota mús, þá er best fyrir þig að nota bara einhverja góða USB mús, OS X styður hægri takkann á henni beint, það er eins og að halda inni ctrl.
Aurgasm er já fjölbreytt tónlistarblogg. Ástæðan fyrir því að ég setti það þarna er sú að oftast nær er verið að taka fyrir músík sem er elektrónísk eða allavega það að stórum hluta. Stundum slæðist inn eitthvað sem fellur ekki undir þennan hatt en þar sem það er bara pláss fyrir 5 færslur þá er það oft fljótt að fara.
Morgan Page D. Ramirez Sally Shapiro Trentemöller Aquasky Future Funk Squad auk þess að það má ekki gleyma því að Gusgus voru að gera rosalega plötu! Sammála með Switch, mjög klár drengur þar á ferð.
Gott að heyra. Mér tókst að gera konuna háða minni Wii með því að sýna henni Virtual Console. Viti menn, allar vinkonurnar mættar í heimsókn til að klára Super Mario Bros aftur eins og þær gerðu í gamla daga.
Pælið í að þetta var sent inn sem grein. Bætt við 25. mars 2007 - 19:54 Með því vildi ég benda houm bjarkathor að vanda sig nú aðeins meira. Þetta er á mörkunum að vera korkaefni.
Maðurinn er guðfaðir housetónlistar yfirleitt ásamt Frankie Knuckles og Marshall Jefferson. En hann er jú creditaður fyrir að hafa fundið upp deep house.
Ertu þá að leita að eins hverju translagi? Ef þú vilt flott lag til að blasta og bassinn þinn ræður við þá skaltu skella á Uranium með Radioactive Man. Ed Rush & Optical - Alien Girl virkar líka.
Tel að það sé gefið mál að þeir sem séu að ná sér í ‘backups’ eigi ekki orginal leikinn. Allavega eru þeir í miklum minnihluta því þeir sem eiga orginal diskinn geta nýtt sér glás af hugbúnaði til að bakka upp diskinn sjálfir í eigin tölvu og brenna frekar en að fara á p2p og ná í ISOinn.
Stutt svar: Nei - ekki eins og gömlu. Moddun þar bauð upp á nýjar hliðar á notkun tölvunnar sem var aldrei búist við. Eina sem hægt er að gera eins og er að spila stolna leiki með moddi. Kannski fínt fyrir þá sem tíma ekki að kaupa leiki en mér finnst það enn frekar takmarkað.
Mér finnst það alveg skoðandi ef áhugi er fyrir. Nú á tímum myspace þá er miklu auðveldara að koma sér á framfæri og etv. fleiri sem eru með frambærilegt efni sem er keppnishæft.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..