Reyndar ætlaði ég ekki að fara út í grein með Hex, þar sem þar gilda nákvæmlega sömu lögmál og í tugakerfinu okkar, sem og binary. Eini munurinn er að þá höfum við 16 tákn til að tákna hverja einingu af tölu. Við höfum 0 upp í 9, sem táknar það sama og í tugakerfinu (base-10) og að auki A, B, C, D, E, F þar sem A=10, B=11, C=12, D=13, E=14, F=15. Svo gilda sömur reglur til að færa tölur á milli kerfa, dæmi um hex tölu: C3, við setjum þetta upp í formúluna okkar, nema nú margföldum við með 16...