Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: PHP eða Python ?

í Forritun fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Já ég verð eiginlega að vera sammála með að velja eitthvað inn í þessa setningu. Það er mjög mismunandi hvað virkar í hvaða verk. php er alveg ágætt í sína hluti en ég myndi nú ekki velja það í að skrifa t.d. stýrikerfi ;)og eins myndi ég ekki nenna að skrifa vefkerfi í C Þannig að það er varla hægt að segja að eitthvað mál sé “best” þau bara henta misvel í verkefni

Re: forrit til heimasíðugerðar

í Forritun fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Mæli með að fletta bara IDE upp á t.d. wikipedia. Svarið frá “fylkirbestir” ætti að virka ágætlega fyrri þig ef þú ert að hugsa um frekar basic html, hugsanlega php síðu

Re: forrit til heimasíðugerðar

í Forritun fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ég verð nú að vera ósammála þeim sem hér að undan koma með val á forriti. Framleiðni er mun meiri ef notast er við gott IDE, ágætt að nota eitthvað svona einfallt þegar byrjað er en svo er um að gera að fara út í eitthvað meira alvöru. Varðandi upphaflegu spurninguna. Valið byggist að miklu leiti á því hvort þú kannt eitthvað forritunarmál eða hvort þú vilt bara fá einfalda html síðu sem jafnvel væri púslað saman í einhverju svipuðu frontpage.

Re: PHP eða Python ?

í Forritun fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Það er nú kannski ágætt að það komi fram að ég er nokkuð viss um að python er eldra en php, eftir því sem ég best veit þá er python 4 árum eldra en php. Vantar líka eiginlega meiri upplýsingar um þetta verkefni til að hægt væri að taka einhverja “góða” ákvörðun um hvaða mál á að nota.

Re: hugmynd..

í Forritun fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ef þú ætlar að gera eitthvað svona þarftu nú fleiri heldur en alla notendur hér á forritun ;) Og bíst nú ekki heldur við því að nálægt því allir hér hafi þá miklu kunnáttu sem þarf í svona framkvæmd. (Ekkert illa meint gegn notendum, ég þyrfti að kynna mér margt áður en ég færi í eitthvað svona ) Svo væri þetta ólaunað og þá er spurning hvort þeir sem færastir eru hér myndu fara út í svona gríðarlega stór verkefni. Það getur verið mikið mál að forrita minnstu leiki almennilega, hvað þá svona...

Re: hugmynd..

í Forritun fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Svona aðeins til að commenta á þetta að þá er þetta nú varla raunhæft. Ef þú ert byrjandi þá ertu ekki að fara að koma nálægt neinu svona, allt of margt sem þú þarft að læra fyrst. Það er ekki að ástæðulausu sem þú ert rukkaður um hellings pening fyrir FIFA og svipaða leiki. Það eru risa hópar af mjög færum forriturum á bak við svona dæmi.

Re: Hvað er best að nota?

í Forritun fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Þar sem allir virðast vera að commenta á þetta þá verður maður nú að vera með ;) Fyrsta mál sem ég lærði af einhverju viti var C++, það hentar vel sem fyrsta mál, það eru náttúrulega hlutir í því sem þú þarft ekki að hugsa um í t.d. java og C#. Það er nú samt fínt að byrja í c++ og þá sérðu hvað java og C# er að hjálpa þér mikið. Þessi þrjú mál sem ég nefni eru öll frekar lík að forrita í, myndi samt segja að ef þú lærir c++ ættirðu að eiga mjög einfalt með að færa þig yfir í java og c#.

Re: Laun í forritun

í Forritun fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Þú ert væntanlega að meina nýútskrifaður tölvunarfræðinur, útskrifaðst ekki sem forritari (Ekki svo ég viti til allavega). Tölvunarfræðingar vinna við hugbúnaðargerð og inn í því væri þá forritun (Skal samt tekið fram að það að búa til forrit er miklu meira en að skrifa kóða) Laun fara svolítið eftir því hversu langt þú ferð í námi, dæmi bs eða ms. Án þess að ég sé alveg viss þá myndi ég giska á að meðallaun nýútskrifaðs tölvunarfræðings með bs væri á bilinu 300-350 þús

Re: hjálp með að búa til riðil !

í Forritun fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Spurning um að orða þessa spurningu aðeins betur, t.d. link á þessa riðla sem þú ert að pæla í, í hvaða forritunarmáli þú vilt gera þetta, o.s.frv. Ef þú vilt fá upplýsingar um einhverja riðla af ksi.is þá eru þeir með SOAP vefþjónustu.

Re: Hjálp við afborgunarforrit - byrjandi

í Forritun fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Þetta er nú samt ágætisverk, lærir helling á þessu, ég gerði þetta nú reyndar í c++ í fyrra, en þetta er svo sem svipað, var fínasta verk ;)

Re: Hjálp við afborgunarforrit - byrjandi

í Forritun fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Gaman að sjá eitthvað gerast hér. Agalega hljómar þetta eins og skilaverkefni hjá hallgrími. Ertu búinn að redda þessu ?

Re: Nokkrir effectar til sölu.

í Hljóðfæri fyrir 17 árum
6500 fyrir AC-3 ?

Re: Til sölu Gibson Les Paul Special

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 12 mánuðum
Ég er nú líka staddur á akureyri ;) Er að skoða nokkra gítara og þessi gæti vel komið til greina. Endilega skelltu mér á msn ef þú ert voppnaður svoleiðis voffman@hotmail.com

Re: Til sölu Gibson Les Paul Special

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 12 mánuðum
Hvar á landinu ertu ?

Re: Til sölu Gibson Les Paul Special

í Hljóðfæri fyrir 18 árum
Er ekkert svona ca verð sem þú vilt fá fyrir hann?

Re: Klassískur gítar óskast

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvernig gítar nákvæmlega er þetta ?

Re: Klassískur gítar óskast

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 1 mánuði
Hvaða Raimundo típa er þetta nákvæmlega?

Re: Klassískur gítar óskast

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 1 mánuði
Nei, á svoleiðis græju, vantar klassískan.

Re: Gítar til sölu

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Hvar á landinu ertu staddur?

Re: Uppsettning á innbygðu ADSL modemi

í Linux fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég hennti þessu upp á debian 3.0r1 á kernel 2.4.19 og virkaði fínt, er að runna þetta á 300mhz vél

Re: Lang besti og ódýrasti serverinn

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég verð að vera sammála með debian, ég er að runna það á 200mhz vél. Er með vefserver, ftp, mysql,php og þessi vél er yfirdrifið fyrir þetta. Var með red hat en það er bara mun leiðinlegra kerfi að vinna með að mínu mati

Re: Nýtt útlit hugi.is

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Þetta er ótrúlega flott útlit og mjög þægilegt að vinna með

Re: Hvað finnst ykkur vera besta lag Black Sabbath

í Rokk fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mér finnst Iron Man gríðarlegt lag, það er hægt að hlusta á það aftur og aftur

Re: Hvaða Windows útgáfa er best?

í Windows fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Windows 98 er alls ekki lélegt stýrykerfi það hefur verið mjög stöðugt hjá mér! Windows Me er hins vegar eitthvað sem alldrei hefði átt að gefa út, það er óstöðugra en allt og agalegt að vinna með Windows 2000 er gott kerfi en ég hef ekki notað það mjög mikið. Windows xp pro lofar góðu að mínu mati en það vantar enn þó nokkuð af driverum til að ég geti notað það af einhverju viti.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok