Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Talkerz
Talkerz Notandi frá fornöld 12 stig

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Octavo: Ég hafði samband við forráðamenn vefsins en þeir sáu sér ekki fært að svara mér. Þessvegna ákvað ég einfaldlega að redda þessu sjálfur og fékk að láni kennitölu sonar míns sem ekki notar huga.is.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Amplifier: Enn virðist þú ekki vera að ná þeirri einföldu reglu sem hljóðar svo að stór stafur skal skrifaður í byrjun setningar.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mayapaya: Þetta svar finnst mér lýsa þroska þínum í hnotskurn. Þetta kalla ég ekki rökræður.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Octavo: Ég get ekki séð hvernig það kemur þér við en já, það er ég.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Gourry: Manna- og notendanöfn eru undanþegin stafsetningarreglum.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Amplifier: Samt gerir hann þér ekki svo gott að kenna þér að skrifa stóran staf í byrjun setningar.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Amplifier: Nei, það eru tvö “n” í “tímann” Hér er tíminn Um tímann Frá tímanum Til tímans

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mayapaya: Nei ekki er ég mállaus en þar sem ég hafði tekið það fram að ég læsi allt sem ég léti frá mér skrifað hefði meðalgáfuð manneskja getað komist að því að kannski væri ég lengur en aðrir að svara. Af þeim hópi ert þú greinilega ekki.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Octavo: Nei það gerði ég ekki þar sem mér fannst þetta “brot” ekki svo alvarlegt. Ég fullyrti aldrei að ég hefði aldrei nokkurn tímann brotið lög. Það eru þín orð.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Octavo: Nei. Síðast þegar ég vissi var bannað að nota kennitölu annars aðila sem sína eigin án leyfis viðkomandi aðila. Ég fékk leyfi hjá þeim aðila. Þar sem þú veist lítið sem ekkert um málið mættirðu sleppa því að fullyrða um það.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
auto: #1: Samt sem áður má segja að stafsetningin á vefslóðinni sé slæm. #2: Stafsetningarreglur gilda ekki um manna- og notendanöfn. #3: Síðast þegar ég vissi var löglegt að skrifa undir leyninöfnum. Sigvarður Ólafsson er mitt. #4: Ég er ekki að reyna að vera fyndinn, ég er bara að benda á lélega stafsetningu samborgara minna.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mayapaya: “MÉR ER SAMA!!!!!” Þetta tel ég lýsandi dæmi um kæruleysi og fáfræði fólks í dag.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Octavo: Það er einfaldlega vegna þess að þegar ég ætlaði mér að skrá mig inn á vefslóðina http://www.hugi.is með mína eigin kennitölu komst ég að því að hún var í notkun. Þó hafði ég aldrei skráð hana inn sjálfur.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mayapaya: Enn og aftur verð ég að benda á villu hjá þér, það á að vera stór stafur í byrjun setningar.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hallurha: “auðvitað”, ekki “aupvitap”

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mayapaya: “Þá geri ég ráð fyrir að þú kannt allar stafsetningarreglur utan bókar…” Þarna hefði verið rétt að segja: “Þá geri ég ráð fyrir að þú kunnir allar stafsetningarreglur utanbókar…” Muna svo að lesa yfir svörin svo heimskan skíni ekki jafnaugljóslega og raun ber vitni.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Shamaroth: Það er rétt hvort sem þér líkar það eður ei. Má ég svo benda á að yfirleitt er settur punktur á eftir setningu.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Raving: Mér gremst bara einfaldlega það að flestir ráða ekki við neina stafsetningu að ráði í dag.

Re: Stafsetning á vefslóðinni http://www.hugi.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nei, þetta er ekki villa þar sem hægt er að skrifa þetta á báða vegu. Þú mættir kynna þér málið áður en þú setur út á eitthvað.

Re: Evran til Íslands

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Krystall: “Þegar Ísland gékk í EES 1994 ”misstum“ við löghelgi í dómsmálum”. Vil bara benda á að “gekk” er því miður ekki skrifað “gékk” þó að þú vildir það örugglega helst af öllu. Gott er að vita eitthvað um stafsetningu áður en maður leggur í það að skrifa grein.

Re: Sjálfsætðisflokkurinn

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Laufa: “Reyndar er þetta með mitt pólitískt vit aslveg rétt” Vil bara benda á að “alveg” er ekki skrifað “aslveg” Þú mættir kannski athuga stafsetninguna þína, sérstaklega þar sem þú ert að biðjast afsökunar á stafsetningarvillu…

Re: Maison Ikkoku

í Anime og manga fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ulvur þú veist ekkert hvað þú ert að tala um! Líttu í eigin barm áður en þú ferð að alhæfa. Ég get auðveldlega látið banna þig á huga.is þannig að ég held það sé best fyrir þig að slappa aðeins af…

Re: Death dealer og Verotica

í Myndasögur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Holukall: Venjan er að byrja setningu á STÓRUM STAF! Ég þoli ekki svona fólk sem ræður ekki við einfalda stafsetningu!

Re: ykkar álit

í Final Fantasy fyrir 22 árum, 7 mánuðum
strakur16: “Mér sjálfum finnst FF7 frábærastur allra” Það er ekki til neitt sem heitir “frábærastur”. Þú mátt athuga stigbreytinguna þína.

Re: Blindir fá sýn!!!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Nei, ég vil bara að íslenska sé skrifuð rétt. Ég þoli ekki að sjá greinar eftir fólk sem greinilega ræður ekki við að skrifa heila grein villulaust gera það samt sem áður.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok