Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ben Affleck (4 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er búin að halda síðan ég sá Pearl Harbor að hann væri hommi því mér var sagt það og það stóð eitthvað um það í blöðunum þá en svo er hann bara eitthvað að hitta Jennifer Lopez og þau eru eitthvað að dingla sér saman…. Var hann aldrei hommi eða var hann það bara og skipti svo aftur ???????????? Skil þetta ekki alveg :)

Styrktarforeldrar (3 álit)

í Börnin okkar fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Hvað þarf fólk að vera orðið gamalt til að verða styrktarforeldrar barns í útlöndum?? ?? Mér langar ekkert smá að gera þetta og ég geri þetta pottþétt þegar ég verð nógu gömul !!

Elisabeth (1 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum
Þið munið eftir Elisabeth úr Survivor 2 :) Hún átti að fara að gifta sig einhvern tímann… vitiði hvort hún er búin að því ?? ef ekki hvenær ætlaði hún að gifta sig ??

Two guys and a girl (2 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 22 árum
Getur einhver sagt mér hvað sá sem leikur Berg í þáttunum heitir??

Hús (6 álit)

í The Sims fyrir 22 árum
Ég náði mér í voða flott hús á killersims en…. ég setti það inn í leikinn og núna veit ég samt ekkert hvernig ég á að setja það þar sem ég vil hafa það ! Hvar get ég eiginlega fundið það ?

Brúnkuklútar (4 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég var að lesa hérna sem einhver skrifaði að það væru til brúnkuklútar…. eru þeir eitthvað betri en brúnkukrem? Brúnkukremin verða t.d. stundum eftir á höndunum þó maður þvoi sér um hendurnar… sleppur maður við það með brúnkuklútunum?

Kalkúnninn (5 álit)

í The Sims fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég keypti einu sinni kalkún og lét simsuna mína skera hann og þegar hún byrjaði að skera kom allt fólkið í hverfinu í einu í heimsókn….. Veit einhver af hverju þau komu öll?? á þetta kannski bara að vera svona :)

RISA bangsinn!! (4 álit)

í The Sims fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Það kom einu sinni einhver risabjörn til mín, man ekki hvað hann hét…. eitthvað B….. the bear. En alla vega hann læddist að húsinu og tók síðan ógeðslegan skítugan sokk upp úr ruslatunni, þefaði af honum og henti honum á gangstéttina og fór svo bara…… Hefur hann komið til ykkar????? Til hvers kemur hann, kannski bara til að pirra mann :)

Hverjir giskuðu rétt ???!!!???!!! (2 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég sendi inn stuttu eftir að Survivor 2 var búið hvað allir héldu að einhver myndi heita í Survivor 3… svo var ég að skoða hvað þeir sem höfðu svarað sögðu og… Bibba giskaði á Tom - hann var í Boran en er núna kominn í Samburu og….. gmc giskaði á Linda - sem var í Samburu en var kosin burt. Langaði bara að láta ykkur vita =)

Hispanjóla (1 álit)

í Ferðalög fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Getur einhver sagt mér það helsta um Haítí og Dóminíska lýðveldið? Reyndar veit ég eitthvað um það en ef þið vitið eitthvað meira:) Það eru t.d. 190.000 símar, 36 útvarpsstöðvar og 18 sjónvarpsstöðvar í Dóminíska lýðveldinu!!!! Takk takk

Popp (5 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvort að popp sé hollt ? Þá er ég ekki að meina poppið sem maður kaupir sér í bíói heldur örbylgjupoppið. Takk :)

Halló Heimur! (1 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Í gær þá fékk ég sms frá hugi.is og þegar ég opnaði það stóð Hallo Heimur! Er hægt að senda sms einhvers staðar hérna……? Ég skildi þetta nefnilega ekki alveg……..?::::?::::?

Íslenska lagið (6 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Munið þið ekki eftir íslenska Nágranna laginu ? Þegar ég var lítil kunni ég það utan af en núna man ég ekki eitt orð úr textanum! Ef þið munið eitthvað úr því, kannski bara eina setningu þá endilega segið mér Það =)

?Bræður? (3 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ekki eru Paul og Billy bræður ? ( Sko ekki í þáttunum heldur í alvörunni ) Þeir heita nefnilega báðir Spencer í eftirnafn…?

Marion Jones (0 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Finnst ykkur hún best ? Hún hefur unnið held ég öll hlaup sem hún keppir í í tvö ár nema þegar Z. Pintusevick Block ( kann ekki að skrifa nafnið rétt:) ) vann hana í Edmonton. Þegar þær voru svo að keppa á Gullmótinu þá var Block 5. en Marion Jones fyrst…. Þær sem eru að keppa við hana hafa mjög litla möguleika á að vinna, hún vinnur alltaf!

Hafið þið einhverjar hugmyndir fyrir mig ? (1 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jæja.. Ég er nú að hugsa um að fara að lita á mér hárið aftur áður en veturinn kemur.. en ég veit ekki alveg hvernig :( Hárið á mér er dökkt en ég er samt með helling af ljósum og koparlituðum strípum núna sem eru farnar að vaxa alveg óhugnalega mikið úr. Ég er með hár sem er svona pínu pínu síðara en axlirnar og það eru miklar styttur eða svona tjásur neðst í því, ætti ég að hafa það enn þá þannig eða breyta því eitthvað ? Plízz viljiði hjálpa mér, sérstaklega með litinn á hárinu :)

Lou og hver ? (3 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hverjar eru með honum á myndinni í horninu ? Ég kannast reyndar eitthvað við stelpuna…….

Brynju ísinn :o) (4 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég vissi ekki alveg hvort ég ætti að senda þetta hérna inn en…. Þið sem ekki búið á Akureyri þið bara verðið ( það er að segja þegar þið komið til Akureyrar ) að fara í Brynju sem er ísbúð hérna á Akureyri því að þar getið þið fengið besta ís á landinu ! Mér langaði bara að láta ykkur vita til að þið getið smakkað þennan æðislega ís ;)

Hvernig þú átt að setja naglalakkið á þig !!! (5 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég var að lesa í einu blaði hvernig maður á að setja naglalakkið á neglurnar. Fyrst á maður að setja sérstakt undirlakk á neglurnar til að áferðin verði fallegri og til varnar því að neglurnar taki í sig litinn af naglalakkinu. Svo á að bera tvær umferðir af sjálfu naglalakkinu á til að það þekji betur. Ef maður notar ljósa liti þá er kannski nóg að fara eina umferð í sumum tilfellum. Í lokin á svo að setja sérstakt yfirlakk á til þess að naglalakkið endist lengur. Maður yrði frekar lengi að...

Af hverju þurfum við að bíða svona lengi ? (3 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Eru ekki fleiri en ég sem að bara nenna alls ekki að bíða lengur eftir að Survivor 3 byrji ????

Tvö sms (0 álit)

í Farsímar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég veit að þetta er dálítið gamalt sms en samt…….. If you think I´m looking at you, staring at you or giving you the eye, thats because I´m trying to see if you hafe wings. My mom told me that angels had them… Svo er eitt annað I cannot breathe without u coz I love u, coz I only dream of you, coz I can only think of u, coz u are my only reality, my only truth. Be my love , be my life.

Vinsælustu keppendurnir (0 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég var að skoða einhverja Survivor síðu og þar var svona línurit yfir hver væri vinsælasti keppandinn eftir hvern þátt. Rodger var mjög ofarlega allann tímann og var hæstur eftir síðasta þáttinn og Elisabeth var stutt þar á eftir, það munaði mjög litlu á þeim. Tina og Colby voru líka ofarlega en Jerri fór alltaf lægra og lægra eftir hvern þátt. Ég held að þetta passi alveg, Rodger var allan tímann rosalega góður við alla og Elisabeth líka. Tina og Colby voru líka oftast góð við alla en Jerri...

Gsm ráðstefnan (3 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það var Gsm-ráðstefna í Tókyó. Þar voru fulltrúar frá mörgum löndum. Eftir fyrsta daginn fóru Japani, Bandaríkjamaður og Dani í gufubað og fóru að ræða um farsíma. Allt í einu heyrðist píp úr handarbakinu á Japananum og hann fór að tala við hendina á sér. Þegar hann var hættur spurðu hinir hvað hann hefði eiginlega verið að gera. Japaninn svaraði: Já við Japanir erum nú orðnir svo þróaðir að við erum með innbyggðan farsíma í handarbakinu, svo segjum við bara hendinni hvert við viljum hringja...

Save the last dance (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Veit einhver hvenær eða hvort að Save the last dance komi á DVD ?

Þegar það koma nýir símar (5 álit)

í Farsímar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Alltaf þegar það koma nýjar gerðir af einhverjum flottum símum þá langar manni auðvitað alltaf í þá… t.d. þegar Nokia 5110 kom þá langaði mann í hann, árið eftir kom 3210, þá langaði manni í hann og svo kom 3310 árið þar á eftir s.s. núna í ár, sem manni langaði í og langar kannski pínu í enn þá og svo líka 3330 og fullt af öðrum símum =) Ég á 3210 og ætla ekki að fá mér nýjan síma á þessu ári ( eða ætla að reyna það ) því annars þá væri maður bara alltaf að kaupa sér nýjan síma á hverju ári…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok