Jæja..
Ég er nú að hugsa um að fara að lita á mér hárið aftur áður en veturinn kemur.. en ég veit ekki alveg hvernig :(
Hárið á mér er dökkt en ég er samt með helling af ljósum og koparlituðum strípum núna sem eru farnar að vaxa alveg óhugnalega mikið úr.
Ég er með hár sem er svona pínu pínu síðara en axlirnar og það eru miklar styttur eða svona tjásur neðst í því, ætti ég að hafa það enn þá þannig eða breyta því eitthvað ?
Plízz viljiði hjálpa mér, sérstaklega með litinn á hárinu :)
Játs!