Ég var að skoða einhverja Survivor síðu og þar var svona línurit yfir hver væri vinsælasti keppandinn eftir hvern þátt. Rodger var mjög ofarlega allann tímann og var hæstur eftir síðasta þáttinn og Elisabeth var stutt þar á eftir, það munaði mjög litlu á þeim. Tina og Colby voru líka ofarlega en Jerri fór alltaf lægra og lægra eftir hvern þátt.

Ég held að þetta passi alveg, Rodger var allan tímann rosalega góður við alla og Elisabeth líka. Tina og Colby voru líka oftast góð við alla en Jerri var það ekki alltaf…

Ég man ekki hvernig þetta var hjá hinum en þið getið fundið þetta í tenglunum niðri, í efsta minnir mig.
Játs!